Nú get ég hvað sem er

María Thelma Smáradóttir á framtíðina fyrir sér í leiklistinni. Myndin …
María Thelma Smáradóttir á framtíðina fyrir sér í leiklistinni. Myndin Arctic var frumsýnd nýlega í Cannes og hlaut mikið lof en þar leikur hún annað aðalhlutverkið á móti Mads Mikkelsen. mbl.is/Ásdís

Í Perlunni er erill og hópar af ferðamönnum bíða spenntir eftir að fá að komast út á útsýnispallinn. Erindi mitt er hins vegar að hitta unga og efnilega leikkonu sem er nýkomin heim frá Cannes þar sem myndin Arctic var frumsýnd. Þar leikur María Thelma Smáradóttir annað af tveimur aðalhlutverkum á móti danska stórleikaranum Mads Mikkelsen. Þau eru reyndar einungis tvö í allri kvikmyndinni sem var tekin upp hérlendis í snjó, kulda og trekki. En við komum að því síðar; á kaffihúsinu á efstu hæðinni er hlýtt því sólin skín inn um glerkúpulinn og hitar allt upp eins og í gróðurhúsi. María Thelma er mætt; falleg dökkhærð íslensk kona með dálítið taílenskt blóð í æðum. Yfir kaffinu ræðum við lífið og tilveruna, leiklistina og upprunann sem hún hefur nýtt sér í leiklistinni.

Forvitin um upprunann

Þrátt fyrir að vera orðin kvikmyndaleikkona er María Thelma með báða fætur á jörðinni og býr enn í foreldrahúsum. Henni þykir afar gott að vera í hreiðrinu hjá mömmu og pabba, en móðir hennar, Vala Rún Tuankrathok er taílensk og faðirinn, Smári Þrastar Sigurðsson, Íslendingur.
Hvernig kynntust foreldrar þínir?
„Áhugavert að þú skulir spyrja að þessu því það verður sett upp verk um þetta á næsta ári í Þjóðleikhúsinu. Þetta er einleikur sem fjallar akkúrat um þetta, hvernig mamma og pabbi kynntust og af hverju hún kom til Íslands, en þau kynntust í Taílandi. Hún var að vinna á bar og pabbi kom inn á barinn og þau kynnast þar. Hann var að vinna hjá flugfélagi en hann var flugmaður og flugvirki. Svo verður mamma ólétt að eldri systur minni og þau gifta sig í Taílandi og flytja svo til Íslands. „And the rest is history“ en ég er fædd hér,“ segir María Thelma og brosir.
Upphaflega samdi María Thelma stuttan einleik í Listaháskólanum.
„Þetta var lokaverkefnið mitt og við máttum í rauninni gera hvað sem er og einu reglurnar voru að verkið þyrfti að vera tuttugu mínútur. Ég ákvað að fjalla um mömmu mína af því ég var forvitin um líf hennar og mínar ættmæður. Hér á Íslandi getur maður farið í Íslendingabók og þjóðskrá og skoðað allt sitt ættartré. En í Asíu, þegar maður fæðist inn í lægstu stéttirnar, ertu ekkert skráður og það er svolítið eins og þú sért ekki til. Það er svo súrrealískt að hugsa til þess að hinn helmingurinn af mér er þaðan. Þetta eru tveir ólíkir pólar. Ég var ótrúlega forvitin um þetta og fór að grafast fyrir um hennar uppruna,“ segir María Thelma og fór þá að spyrja móður sína spjörunum úr.
Á unglingsárunum segist María Thelma hafa haft áhyggjur af því að útlitið myndi hamla því að hún fengi góð hlutverk í framtíðinni. „En nú hugsa ég að ég eigi eftir að fá fleiri tækifæri, einmitt af því ég lít svona út. Þetta á ekki bara við um mig, heldur alla, af því við höfum öll einhverjar efasemdir um okkur sjálf. Það er algjörlega í okkar höndum hvort við notum það sem styrkleika eða veikleika,“ segir María Thelma sem á við að fólk er alls konar og bæði í kvikmyndum og á sviði er þörf á alls kyns útliti fólks. Enda endurspeglar leiklistin lífið sjálft.

Heppin með leikhópa

Eftir útskrift úr Listaháskólanaum árið 2016 fékk María Thelma strax hlutverk í sjónvarpsseríunni Föngum, sem Nína Dögg Filippusdóttir og Unnur Ösp Stefánsdóttir framleiddu og léku í undir leikstjórn Ragnars Bragasonar. 

„Það var æðislegt. Mér finnst ég hafa verið mjög heppin með leikhópa. Það er mjög vel tekið á móti mér og allir mæta mér á jafningjagrundvelli. Nína og Unnur eru alveg yndislegar. Ég lék fangann Írisi og fyrst og fremst var þetta mjög lærdómsríkt. Það eru svo stórkostlegar leikkonur í þessum þáttum og það að sitja til borðs með þeim var bara: vá! Ég er mjög þakklát. Ég hefði ekki getað verið heppnari og þetta var ótrúlega skemmtilegt,“ segir María Thelma.
Að því loknu var hún ráðin í verkefni hjá Þjóðleikhúsinu þar sem hún hóf störf í janúar 2017 en þar lék hún í barnaleikritinu Ég get og í Risaeðlunum með tveimur af þekktustu leikurum okkar, Eddu Björgvins og Pálma Gests. „Þar segi ég það sama, hvað ég var ótrúlega heppin með leikhóp. Þetta var mjög gefandi og það var aldrei dauð stund, Edda er svo fyndin,“ segir hún. 

Mads er með leikarahjarta

Nýlega var sýnd á Cannes-kvikmyndahátíðinni myndin Arctic með Mads Mikkelsen í aðalhlutverki og Maríu Thelmu. Aðeins þau tvö leika í myndinni, sem er amerísk-íslensk og tekin upp hér á landi. Myndin fékk mikið lof í Cannes og var valin ein af tólf bestu myndum hátíðarinnar.
Hvernig vildi það til að þú fékkst hlutverkið?
„Það var verið að leita að leikkonu af asískum uppruna og þau leituðu víða; í Englandi, Bandaríkjunum og hér heima. Það var haft samband við mig og ég fékk handritið sent og svo hitti ég leikstjóranna. Svo fékk ég hlutverkið. Þetta var ekki prufa heldur átti ég samtal við leikstjóranna. Svo voru tökurnar í apríl og maí 2017. Þetta var ótrúlega krefjandi verkefni,“ segir hún.
„Fyrst og fremst út af veðrinu, við tókum mest upp á Nesjavöllum og það var allt á kafi í snjó. Maður var alltaf í stöðugu kapphlaupi við veðrið og náttúruna,“ segir hún en myndin er um lífsbaráttu á norðurskautssvæðinu.

Mads Mikkelsen, María Thelma, og hinn brasilíski leikstjóri kvikmyndarinnar Arctic, …
Mads Mikkelsen, María Thelma, og hinn brasilíski leikstjóri kvikmyndarinnar Arctic, Joe Penna, stilla sér upp í myndatöku í Cannes í síðasta mánuði. AFP

Hvernig er myndin?
„Ég var að sjá hana í fyrsta skipti um daginn í Cannes og fannst hún mjög góð. Maður nær kannski ekki að njóta hennar alveg þegar maður sér hana í fyrsta sinn því ég var svo mikið að hugsa um praktíska hluti,“ segir María Thelma og brosir.
Hvernig er að leika á móti svona stórstjörnu eins og Mads?
„Hann mætir manni á jafningjagrundvelli og er mjög danskur og jarðbundinn. Hann er rosalega skemmtilegur, skilningsríkur og það var mjög gott að vinna með honum. Hann er enn með leikarahjartað og er ekki að missa sig í hroka. Við sóttum mjög mikið í hvort annað hvað varðar handritið og eyddum miklum tíma í að undirbúa okkur og til að missa ekki sjónar á því sem við vorum að gera. Á sama tíma voru aðstæðurnar svo erfiðar að maður þurfti að vera seigur til að komast í gegnum þetta, en þetta var góð reynsla. Það hefði verið auðvelt að missa sig í pirring, og þá meina ég ekki út í hvort annað heldur vegna erfiðra aðstæðna sem við vorum í. Okkur var alltaf kalt og það var alltaf blautt. Alltaf rok. Maður var alltaf með snjó í andlitinu. Þannig að þetta var rosa töff á þennan hátt og ég held að kuldinn geti dregið það versta fram í manni. Þetta voru ekki lúxustökur! Á einum tímapunkti sagði Mads: „Þetta er erfiðasta verkefni sem ég hef tekið þátt í“. Og ég sagði: „Þetta er fyrsta verkefni sem ég hef tekið þátt í!““ segir hún og skellihlær.
„Þannig að þetta er viðmiðið mitt núna. Ég var í útitökum í gær fyrir auglýsingaherferð og það var alveg kalt en ekkert miðað við Arctic! Viðmiðið er svo hátt, nú get ég hvað sem er. Þetta var ótrúlega krefjandi og mikilvægt að standa með sjálfum sér í gegnum allt ferlið.“

Leikhúsið er hættulegra

Hvernig var það að vera á rauða dreglinum í Cannes?
„Það var ótrúlegt að vera þarna, svo súrrealískt. Ég var svo stolt af öllum þeim sem komu að myndinni. Það sem stóð upp úr hjá mér var að sjá allt íslenska tökuliðið þarna, á Cannes, stærstu og flottastu listahátíð í heimi. Við Íslendingar erum komnir þangað, mjög langa leið. Við eigum svo harðgert og flott fólk í þessum bransa. Allir manns draumar og öll manns markmið eiga alveg séns.“
María Thelma segir að hugsanlega geti kvikmyndahlutverkið opnað dyr að öðrum stórum hlutverkum. „Maður veit aldrei. Það eru breyttir tímar hér á landi, í gamla daga var bara hægt að fá hlutverk í leikhúsunum en núna er svo mikil gróska í kvikmyndum og sjónvarpsseríum. Ég er eiginlega búin að vera meira í sjónvarpi en í leikhúsinu.“
Hvort er skemmtilegra?
„Það er hættulegra að vera í leikhúsi, maður þarf að negla þetta í hvert skipti. Og gera það mörg kvöld í röð. En í bíómyndum og sjónvarpinu er þetta nánari leikur.“
Þú endar kannski í bíómynd með Brad Pitt?
„Það er ekkert verið að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur,“ segir hún og skellihlær.
„Annars er það svo fyndið, að um leið og ég plana eitthvað langt fram í tímann er eins og að lífið loki á það og beini mér í einhverja allt aðra og betri átt.“

„Þrautseigjan er mikilvæg. Það getur enginn vegið og metið vinnuna …
„Þrautseigjan er mikilvæg. Það getur enginn vegið og metið vinnuna þína nema þú sjálfur. Maður á ekki að taka minna pláss en maður þarf; taktu bara meira pláss. Stattu með þér,“ segir leikkonan María Thelma. AFP

Að taka meira pláss

María Thelma er reynslunni ríkari eftir Arctic og segist hafa lært heilmikið.
„Mér leið stundum eins og það væri stutt í það að gefast upp en það skiptir svo miklu máli að halda áfram og ekki afsaka vinnuna sína, á einn eða annan hátt. Þrautseigjan er mikilvæg. Það getur enginn vegið og metið vinnuna þína nema þú sjálfur. Maður á ekki að taka minna pláss en maður þarf; taktu bara meira pláss. Stattu með þér. Það er nefnilega algengt hjá ungum leikkonum að afsaka sig og bakka út í staðinn fyrir að fagna sér og sinni vinnu því það er enginn að fara að vinna vinnuna fyrir þig. Þetta var svo erfitt og gott ferli að ég ætla bara að fagna því.“

Ítarlegt viðtal við Maríu Thelmu er í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina. 

Mads Mikkelsen leikur í myndinni Arctic á móti Maríu Thelmu.
Mads Mikkelsen leikur í myndinni Arctic á móti Maríu Thelmu.
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert