Alfreð Finnboga kennir íslensku

mbl.is/Eggert

Alfreð Finnbogason, sóknarmaður íslenska landsliðsins í fótbolta, er í stuði í Rússlandi. Hann deildi fyrr í dag myndbandi á Twitter-síðu sína þar sem farið er yfir nokkra af mikilvægstu fótboltafrösunum, sem verða að kunna skil á ætli þeir á annað borð að kalla sig stuðningsmann Íslands. 

„Mark“, „Áfram Ísland“ og „Þú stendur fyrir framan sjónvarpið“ er meðal þess sem Alfreð reynir að kenna útlendingunum í þessu skemmtilega myndbandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert