Gluggar Gerðar í viðgerð

Gluggarnir verða sendir til viðgerðar á verkstæði Oidtmann í Linnich …
Gluggarnir verða sendir til viðgerðar á verkstæði Oidtmann í Linnich í Norður-Þýskalandi. mbl.is/​Hari

Starfsmenn þýska fyrirtækisins Oidtmann byrjuðu í gær að taka niður steinda glugga Gerðar Helgadóttur í Kópavogskirkju.

Gluggarnir verða sendir til viðgerðar á verkstæði Oidtmann í Linnich í Norður-Þýskalandi, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Listiðnaðarverkstæðið þýska gerði gluggana á sínum tíma eins og fleiri gluggalistaverk í íslenskum kirkjum. Stefan Oidtmann rekur nú fyrirtækið sem hefur verið í eigu fjölskyldu hans í rúm 160 ár.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert