Fimm manna fjölskylda í bílveltu

mbl.is/Hjörtur

Jepplingur með fimm manna fjölskyldu valt í Jökuldalnum um klukkan 12.

Að sögn lögreglunnar á Austurlandi missti ökumaðurinn stjórn á bílnum á nýlagðri klæðningu á veginum.

Allir í bílnum, sem eru erlendir ferðamenn, voru fluttir á sjúkrahús til frekari skoðunar en talið er að meiðsli fólksins hafi verið minni háttar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert