Bílslys við Sprengisand

Af vettvangi slyssins.
Af vettvangi slyssins. mbl.is/Sigurður Bogi

Bílslys varð á Reykjanesbraut skammt frá Sprengisandi rétt í þessu. Búast má við umfangsmiklum töfum á umferð á svæðinu, en Bústaðavegur er lokaður við Reykjanesbraut að því er segir á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu er um þriggja bíla árekstur að ræða. Tveir hafa verið fluttir á slysadeild, en ekki er vitað nánar um líðan þeirra að svo stöddu. Rannsókn lögreglu stendur nú yfir á vettvangi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert