Einn alvarlega slasaður

Af vettvangi slyssins.
Af vettvangi slyssins. mbl.is/Sigurður Bogi

Einn er alvarlega slasaður eftir bílslys sem varð á Reykjanesbraut við Sprengisand laust fyrir klukkan 15 í dag. Bústaðavegur hefur verið lokaður í á aðra klukkustund vegna slyssins en unnið er að opnun hans.

Þrír bílar lentu í árekstrinum að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, tveir fólksbílar og lítill flutningabíll. Tveir voru fluttir á slysadeild með sjúkrabíl en aðrir voru metnir á staðnum og ekki var talin þörf á að flytja þá á slysadeild.

Búið er að flytja bifreiðarnar af svæðinu, en þær munu vera talsvert skemmdar. Rannsókn lögreglu á tildrögum slyssins heldur áfram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert