Í síðustu viku var starfsemi Læknavaktarinnar flutt af Smáratorgi í Kópavogi í Austurver að Háaleitisbraut 68 í Reykjavík. Ný húsakynni eru rúmgóð og þar er aðstaða til að veita skjólstæðingum betri þjónustu, með fleiri læknastofum og stórri og bjartri biðstofu auk þess sem ný afgreiðslutækni ætti að flýta afgreiðslu og stytta biðtíma.
„Staðsetningin er góð og húsnæðið hentar vel,“ segir Gunnar Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Læknavaktarinnar, í umfjöllun um vistaskiptin í Morgunblaðinu í dag.
Mikið breyttist þegar Læknavaktin á Smáratorgi var opnuð árið 1998 og raunar má tala um að þá hafi orðið bylting í þjónustu. Á vaktina hefur fólk getað leitað frá því síðdegis og fram á tólfta tímann á kvöldin, það er eftir að heilsugæslustöðvum er lokað. Þegar starfsemin hófst fyrir tuttugu árum komu um 30 þúsund manns á ári en í fyrra var talan komin í 82.500. Því var fólki ljóst á síðasta ári að húsnæðið, sem er 300 fermetrar, væri sprungið og bæta þyrfti úr.
„Það var alls ekki sjálfgefið að við flyttum; aðrar ráðstafanir á Smáratogi hefðu alveg komið til greina. Þegar þetta frábæra húsnæði hér í Austurveri losnaði, sem er um 700 fermetrar, varð ekki aftur snúið. Hér erum við mjög miðsvæðis miðað við fjölmennustu hverfin á höfuðborgarsvæðinu, í húsinu er apótek og Landspítalinn í Fossvogi rétt hjá. Þetta verður varla betra,“ segir Gunnar Örn og bætir við að sérstök áhersla hafi verið lögð á að biðstofan væri aðlaðandi.