Staða Páls sem þingmanns óbreytt

Birgir Ármannsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins.
Birgir Ármannsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Kristinn Magnússon

Birgir Ármannsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir að staða Páls Magnússonar sem þingmanns flokksins í Suðurkjördæmi sé óbreytt, eftir að honum var vikið úr fulltrúaráði Sjálfstæðisfélagsins í Vestmannaeyjum í gærkvöldi.

„Flokksfélög og fulltrúaráð í einstökum sveitarfélögum eru auðvitað sjálfstæð um sínar ákvarðanir og það er misjafnt hvort það er sérstaklega tilgreint í reglum þessara stofnana flokksins hvort þingmenn eigi þar sæti eða ekki,“ segir Birgir í samtali við mbl.is.

Hann bætir því hins vegar við að það sé skýrt að þingmenn séu sjálfkjörnir í kjördæmisráð og flokksráð sem starfar fyrir landið allt.

Harðorð ályktun fundar

Full­trúaráðið í Vestmannaeyjum lýsti í gærkvöldi yfir fullu van­trausti á Pál vegna „fordæmalausrar fram­göngu“ hans í aðdrag­anda nýliðinna sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga og segir í ályktun fundarins að ráðið geti ekki litið á þingmanninn sem trúnaðarmann Sjálfstæðisflokksins.

„Þeir sem að þessari samþykkt standa velja auðvitað þau orð sem þeir vilja og það er auðvitað ljóst að þarna hefur hlaupið mikil harka í málin. En hin formlega staða hefur ekki með neinum hætti breyst,“ segir Birgir og bætir við að ákvarðanir eða átök af þessu tagi sem eigi sér stað á vettvangi einstakra sveitarfélaga hafi ekki áhrif á stöðu þingmanna á kjördæmisvísu eða landsvísu.

„Staða þingmanns Sjálfstæðisflokksins er auðvitað óbreytt en þegar átök verða og ágreiningur kemur upp þá þurfa menn sem vinna saman í flokki auðvitað að tala saman,“ segir Birgir Ármannsson.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir í Fréttablaðinu í dag að hann ætli að ræða þetta mál við sitt fólk, en mbl.is hefur ekki náð í formanninn í morgun, né heldur Pál Magnússon, þingmann Suðurkjördæmis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert