Forsetinn með varðskipi til Hrafnseyrar

Georg Kr. Lárusson og Guðni forseti.
Georg Kr. Lárusson og Guðni forseti. Ljósmynd/Aðsend

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, steig á skipsfjöl á varðskipinu Þór síðdegis ásamt fylgdarliði.

Forseti heimsækir Hrafnseyri við Arnarfjörð í fyrsta sinn síðan hann tók við embætti en áætlað er að Þór verði kominn vestur í fyrramálið, að því er segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.

Skipherra á Þór er Halldór Benóný Nellett og með í för er Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar.

Þetta er í fyrsta sinn í rúm 30 ár sem forseti Íslands gistir um borð í varðskipi en það gerði frú Vigdís Finnbogadóttir síðast á níunda áratug síðustu aldar.

Hún var þá einnig á leið til Hrafnseyrar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert