82 útskrifuðust frá Bifröst

Frá brautskráningunni í dag.
Frá brautskráningunni í dag. Ljósmynd/Aðsend

Vilhjálmur Egilsson, rektor Háskólans á Bifröst, útskrifaði í dag 82 nemendur við hátíðlega athöfn.

Útskriftarhópurinn samanstóð af nemendum úr viðskiptadeild, félagsvísinda- og lagadeild, námi í verslunarstjórnun og Háskólagátt.

Þetta kemur fram í tilkynningu

Útskriftarverðlaun í grunnnámi hlutu Davíð Helgi Ingimundarson, viðskiptafræði og María Neves, félagsvísinda og lagadeild. Í meistaranámi hlutu útskriftarverðlaun Jenný Magnúsdóttir, viðskiptadeild og Bryndís Jóhanna Jóhannsdóttir, félagsvísinda- og lagadeild.

Að auki fengu tveir nemendur felld niður skólagjöld á vorönn vegna framúrskarandi námsárangurs, þau Helena Rós Tryggvadóttir, viðskiptadeild og Pétur Steinn Pétursson, félagsvísinda- og lagadeild.  

Bjarni Heiðar Halldórsson var með hæstu meðaleinkunn í Háskólagátt og fær hann felld niður skólagjöld fyrstu annar í grunnnámi við Háskólann á Bifröst, að því er segir í tilkynningunni.

Ræðumaður fyrir hönd nemenda í Háskólagátt var Alexander Þór Sigmarsson. Elísabet Halldórsdóttir flutti ræðu fyrir hönd grunnnema í viðskiptadeild og María Neves fyrir hönd grunnema í félagsvísinda- og lagadeild. Ávarp fyrir hönd meistaranema í viðskiptadeild flutti Áslaug María Ragnarsdóttir og Bryndís Jóhanna Jóhannesdóttir fyrir hönd meistaranema í félagsvísinda- og lagadeild. 

Karlakórinn söngbræður sá um söngatriði við útskriftina. Að athöfn lokinni þáðu gestir léttar veitingar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert