Allt vitlaust á Ingólfstorgi í leikslok

AFP

Stemningin var gjörsamlega tryllt á Ingólfstorgi í dag þegar flautað var til leiksloka í leik Íslands og Argentínu eins og sjá má á þessu myndskeiði sem Arnúlfur Hákonarson deildi á Youtube-rás sinni.

Hann byrjaði að taka myndskeiðið rétt áður en dómarinn flautaði leikinn af, en líklega höfðu flestir Íslendingar haldið niðri í sér andanum síðustu mínútur leiksins, ef ekki allan leikinn, sem endaði með 1:1 jafntefli eins og frægt er orðið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert