Sjö ár fyrir brot gegn barnabörnum

mbl.is/Hjörtur

Landsréttur hefur þyngt dóm yfir karlmanni um áttrætt sem var sakfelldur í héraði fyrir kynferðisbrot gegn þremur barnabörnum sínum. Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi manninn í fjögurra ára fangelsi í júlí í fyrra. Landsréttur dæmdi manninn í gær í sjö ára fangelsi.

Maðurinn braut gegn þremur dætradætrum sínum þegar þær voru á barnsaldri. Um var að að ræða gróf og alvarleg brot gagnvart stúlkunum framin í skjóli trúnaðartrausts sem þær máttu bera til afa síns.

Þá voru brotin verið margendurtekin og framin á um tíu ára tímabili. Landsréttur segir að vilji afans til að brjóta gegn stúlkunum hafi verið sterkur og einbeittur.

Hann var ennfremur dæmdur til að greiða tveimur stúlkum skaðabætur, 3.000.000 króna hvorri um sig.

Dómur Landsréttar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert