„Þjóðin ótrúlega stolt af ykkar góða árangri“

Það er ekki hægt að neita því að það er …
Það er ekki hægt að neita því að það er stemning í landanum um þessar mundir. mbl.is/Eggert

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sendi karlalandsliði Íslands í knattspyrnu kveðju frá ríkisstjórn Íslands í dag.

Bréfinu var komið á framfæri í gegnum sendiráð Íslands í Moskvu og er svohljóðandi:

„Kæru knattspyrnukappar!

Ég vil að þið vitið að þjóðin öll er ótrúlega stolt af ykkar góða árangri.

Sá hluti þjóðarinnar sem ekki er þegar mættur til Rússlands til að hvetja ykkur til dáða mun án efa sitja límdur fyrir framan sjónvarpsskjáinn og hvetja ykkur áfram af jafn miklum krafti að heiman. 

Við erum öll með ykkur í anda. 

Áfram Ísland!“

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. mbl.is/​Hari
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert