Tippaði á rétt úrslit og vann síma

Vinningshafinn Björn Daníel Daníelsson var að sjálfsögðu ánægður með vinninginn.
Vinningshafinn Björn Daníel Daníelsson var að sjálfsögðu ánægður með vinninginn. Ljósmynd/Aðsend

Björn Daníel Daníelsson bar sigur úr býtum í HM-leik útvarpsstöðvarinnar K100, Morgunblaðsins og mbl.is með því að tippa á rétt úrslit í leik Íslands og Argentínu en leikurinn endaði 1-1.

Alls tippuðu 138 á rétt úrslit og var nafn Björns Daníel dregið upp úr hattinum með slembiúrtaki.

Hann hlýtur að launum Samsung Galaxy S9 eða S9+ frá Tæknivörum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert