Tvö þúsund sáu leikinn í Listagili

mbl.is/Þorgeir

HM-stemningin var í hámarki á Akureyri í dag, rétt eins og annars staðar á landinu, þegar Ísland spilaði við Argentínu í Moskvu.

Um tvö þúsund manns mættu í Listagil og fylgdust með leiknum á risaskjá og fögnuðu ákaft bæði þegar Alfreð Finnbogason skoraði mark Íslands og þegar Hannes Þór Halldórsson varð víti argentíska snillingsins Messi.

Einnig var hægt að fylgjast með leiknum í sundlauginni á Akureyri þar sem smærri skjá var komið fyrir.

mbl.is/Þorgeir
mbl.is/Þorgeir
mbl.is/Þorgeir
mbl.is/Þorgeir
mbl.is/Þorgeir
mbl.is/Þorgeir
mbl.is/Þorgeir
mbl.is/Þorgeir
mbl.is/Þorgeir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert