Fjórtán hlutu fálkaorðuna

Fálkaorðuhafarnir á Bessastöðum í dag ásamt forseta Íslands.
Fálkaorðuhafarnir á Bessastöðum í dag ásamt forseta Íslands. Ljósmynd/Gunnar G. Vigfússon

Fjórtán manns hlutu heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag, 17. júní.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsetaembættinu:

Þeir sem hlutu fálkaorðuna eru:

1. Aðalbjörg Jónsdóttir prjónalistakona, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar prjónahefðar og hönnunar

2. Andrea Sigríður Jónsdóttir útvarpsmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til kynningar á íslenskri og erlendri dægurtónlist

3. Árni Björnsson þjóðfræðingur, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi íslenskra þjóðfræða og menningar

4. Edda Björgvinsdóttir leikkona, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar leiklistar

5. Erna Magnúsdóttir forstöðumaður, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu krabbameinssjúkra

6. Friðrik Skúlason tölvunarfræðingur, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag á sviði upplýsingatækni

7. Hilmar Örn Hilmarsson tónskáld, Álftanesi, riddarakross fyrir framlag til íslenskar tónlistar og trúarhefðar

8. Kristín G. Gunnlaugsdóttir myndlistarmaður, Seltjarnarnesi, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar myndlistar

9. Nanna V. Rögnvaldardóttir rithöfundur, Reykjavík, riddarakross fyrir ritstörf á sviði matarmenningar

10. Sigurður Steinar Ketilsson fyrrverandi skipherra, Hafnarfirði, riddarakross fyrir framlag til landhelgisgæslu og björgunarstarfa

11. Stefán Karl Stefánsson leikari, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar leiklistar og samfélags

12. Steinar J. Lúðvíksson rithöfundur, Garðabæ, riddarakross fyrir framlag til sagnaritunar og blaðamennsku

13. Sævar Pétursson bifvélavirki, Kópavogi, riddarakross fyrir framlag til varðveislu og endurgerðar gamalla bifreiða

14. Valgerður Jónsdóttir skólastjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi tónlistarkennslu fatlaðra.

Bessastaðir.
Bessastaðir. mbl.is/Ómar Óskarsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert