Golfvelli í Haukadal lokað

Frá Haukadalsvelli.
Frá Haukadalsvelli.

Haukadalsvöllur við Geysi verður ekki opinn í sumar til golfleiks. Mikið tjón varð á stórum svæðum vallarins sem kom óvenju illa undan hörðum vetri.

Eigendur og stjórn Golfklúbbsins Geysis tóku af þeim sökum þá ákvörðun að opna völlinn ekki í ár. Að sögn Ágústu Þórisdóttur, umsjónarmanns vallarins, er einsdæmi hversu illa völlurinn kom undan vetri.

„Þetta var harður vetur og frostið sat í lengi, svo það bara kól. Alltaf hafa komið frostblettir yfir veturna en þetta eru svo rosalega stór svæði sem frusu,“ segir Ágústa í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert