Andköf æðstu embættismanna yfir leiknum

Spennan var mikil yfir leik Íslands og Argentínu.
Spennan var mikil yfir leik Íslands og Argentínu. Ljósmynd/Haukur Sigurðsson

Eftirvæntingin var gríðarmikil fyrir leik Íslands og Argentínu á HM í knattspyrnu á laugardag og horft var á leikinn víða um land. Meðal áhorfenda á Hrafnseyri voru þau Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.

Ljósmyndarinn Haukur Sigurðsson var á staðnum og náði þessari ljósmynd á einu af æsispennandi augnablikum leiksins. Glöggir geta leikið sér að því að giska á það hvað var að gerast á vellinum í Moskvu þegar Haukur smellti af.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert