Íslendingar hressir og kátir í Volgograd

Þessi víkingahjálmur vakti lukku.
Þessi víkingahjálmur vakti lukku. mbl.is/Eggert

Íslendingar í Volgograd fylgdust margir hverjir spenntir með leik Króatíu og Argentínu á stuðningsmannasvæðinu í borginni í kvöld og var stemningin gríðarlega góð er ljósmyndara Morgunblaðsins og mbl.is bar að garði.

Leikurinn endaði 3-0 fyrir Króata og þýðir það að staða íslenska liðsins verður afar vænleg ef góð úrslit nást gegn Nígeríumönnum á morgun.

Mikil gleði virðist vera ríkjandi hjá íslenskum stuðningsmönnum í borginni og við hér á mbl.is vonum bara að fólk gangi hægt um gleðinnar dyr í kvöld og verði í góðu standi á leiknum á morgun.

Íslendingar fjölmenntu á stuðningsmannasvæðið í Volgograd í kvöld.
Íslendingar fjölmenntu á stuðningsmannasvæðið í Volgograd í kvöld. mbl.is/Eggert
mbl.is/Eggert
Lundagrímurnar eru mögulega sniðugar til þess að verjast ágangi mýflugna.
Lundagrímurnar eru mögulega sniðugar til þess að verjast ágangi mýflugna. mbl.is/Eggert
Það er mikil stemning í þessu handabandi stuðningsmanna Nígeríu og …
Það er mikil stemning í þessu handabandi stuðningsmanna Nígeríu og Íslands. mbl.is/Eggert






mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert