Sólskinsdagarnir vel nýttir í heyskap

Heyið rakað í forgrunni Eyjafjallajökuls.
Heyið rakað í forgrunni Eyjafjallajökuls. Ljósmynd/Guðmundur Karl

Víða um land nýttu bændur heiðríkju og sólskin vel og hófu slátt í gær. Í Stóru-Sandvík í Árborg hófst sláttur í fyrradag en gærdagurinn var nýttur til hirðingar.

„Þetta lítur ágætlega út en það er ótíð. Það er rigning í fyrramálið og við keppumst við að ná þessu,“ sagði Ari Páll Ögmundsson, bóndi í Stóru-Sandvík.

Á myndinni er sonur hans, Sverrir Pálsson, að raka saman heyinu og Eyjafjallajökull tignarlegur í baksýn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert