Víðförull hnúfubakur lætur sjá sig hér á ný

Hnúfubakurinn víðförli í æti suður af Hauganesi í fyrradag.
Hnúfubakurinn víðförli í æti suður af Hauganesi í fyrradag. mbl.is/Sigurður Ægisson

Hnúfubakur sem merktur var með gervitunglasendi við Hrísey í Eyjafirði þann 10. nóvember 2014 og var 110 dögum síðar staddur í Karíbahafi, er nú aftur kominn á sumarstöðvarnar hér við land, var í fyrradag í miklu æti suður af Hauganesi ásamt nokkrum öðrum.

Þetta rúmlega 7.500 km ferðalag frá vetrarstöðvunum hingað norður tekur 5-6 vikur hvora leið, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Norður af Dóminíska lýðveldinu og Puerto Rico sem og við Grænhöfðaeyjar eru þekktar æxlunarstöðvar hnúfubaks og menn höfðu lengi grunað íslensku dýrin um að fara á annan hvorn staðinn, en ekki hafði tekist að sanna þá tilgátu fyrr en þarna. Umræddur hnúfubakur mun ekki hafa sést í Eyjafirði í fyrra.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert