Reyndi að bíta mann

mbl.is/Þórður

Kona í annarlegu ástandi var handtekin á slysadeild Landspítalans seint í gærkvöldi fyrir að reyna að bíta mann. Í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir að konan sé einnig grunuð um vörslu fíkniefna og var hún vistuð í fangageymslu lögreglunnar vegna rannsóknar málsins.

Í nógu var að snúast hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt og voru 130 mál skráð í dagbók hennar á tólf klukkustunda tímabili frá 17 í gær og til 5 í morgun. Fangageymslurnar eru fullar en þar voru sautján manns vistaðir í nótt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert