Þakplötur fuku á höfuðborgarsvæðinu

Björgunarsveitarmenn festa þakplötur - mynd úr safni.
Björgunarsveitarmenn festa þakplötur - mynd úr safni. mbl.is/Golli

Björgunarsveitarfólk í Mosfellsbæ var kallað út um fjögur í nótt vegna þess að þakplötur voru farnar að fjúka af húsum í sveitarfélaginu.

Um sex í morgun var björgunarsveitarfólk í Reykjavík einnig kallað út en þakplötur voru farnar að fjúka af húsi við Rauðagerði og eins voru þakplötur farnar að losna á húsum í Mjóddinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert