Vann 30 milljónir í happdrætti DAS

Kona á sjötugsaldri vann 30 milljónir á tvöfaldan miða þegar dregið var út í happdrætti DAS í síðustu viku.

Fram kemur í tilkynningu, að vinningurinn sé skattfrjáls og því megi segja að þetta sé á við 56 milljónir í launaumslagi.

Næsti 30 milljóna króna vinningur verður dreginn út í ágúst en sex slíkir vinningar eru í boði á happdrættisárinu. Í júlí verða 98 milljónir dregnar út í fimm útdráttum.

Fram kemur í tilkynningu, að um þessar mundir standi yfir byggingaframkvæmdir á 99 rýma hjúkrunarheimili við Sléttuveg í Reykjavík auk þjónustukjarna. Hrafnista er þátttakandi í því verkefni með stuðningi frá happdrætti DAS.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert