Einn fluttur á sjúkrahús eftir árekstur

Einn var fluttur á sjúkrahús eftir tveggja bíla árekstur á …
Einn var fluttur á sjúkrahús eftir tveggja bíla árekstur á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tveggja bíla árekstur varð á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar laust eftir klukkan ellefu í kvöld. Einn var fluttur á sjúkrahús með minniháttar áverka. 

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var um töluvert harðan árekstur að ræða. Tveir sjúkrabílar og dælubíll voru sendir á vettvang. Einnig var óskað eftir aðstoð tækjabíls en hún afþökkuð þegar ljóst var að ekki var á honum að halda. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert