20 lágvarmavirkjanir á næstu þremur árum

Ann Linde, utanríkisviðskipta- og Evrópunálaráðherra Svíþjóðar, Håkan Juholt, sendiherra Svíþjóðar, …
Ann Linde, utanríkisviðskipta- og Evrópunálaráðherra Svíþjóðar, Håkan Juholt, sendiherra Svíþjóðar, og Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra. Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið

Ný lágvarmavirkjun var opnuð á Flúðum í dag af Guðlaugi Þór Þórðarsyni, utanríkisráðherra, og Ann Linde, utanríkisviðskipta- og Evrópumálaráðherra Svíþjóðar. Virkjunin byggir á nýrri sænskri tækni og stefnt er að opna tuttugu slíkar virkjanir á næstu þremur  árum. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

Mynd/Utanríkisráðuneytið

Linde sem stödd hér á landi í vinnuheimsókn og ræddu ráðherrarnir meðal annars á fundi sínum stöðu alþjóðaviðskipta, Evrópusamstarfs, útgöngu Breta úr Evrópusambandinu og samstarf Norðurlanda.

„Tengsl Íslands og Svíþjóðar eru sterk og norrænu gildin eru grundvöllur náins samstarfs á alþjóðavettvangi. Við erum sammála um að tækifæri til aukinna viðskipta milli ríkjanna séu mikil og er jarðvarmastöðin á Flúðum dæmi um það. Hún tvinnar saman sænska tækni og íslenska orku og opnar mikla möguleika á frekari nýtingu á lághitasvæðum,“ sagði Guðlaugur Þór að loknum fundi ráðherrana.

Lágvarmavirkjunin er í landi Kópsvatns í Hrunamannahreppi og byggist hún á nýrri sænskri tækni. Verkefnið er samstarf Varmaorku og sænska fyrirtækisins Climeon sem framleiðir búnað til virkjunar lághitasvæða sem áður var ekki hægt að nýta til orkuframleiðslu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert