Strákarnir okkar komnir heim

Leikmenn íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, strákarnir okkar, eru komnir heim frá Rússlandi. Íslenska þjóðin hefur undanfarnar tvær vikur fylgst með liðinu þreyta frumraun sína á HM í knattspyrnu og ljóst er að stolt er þjóðinni efst í huga. 

Jafnteflið við Argentínu í fyrsta leik liðsins á mótinu mun seint hverfa úr manna minnum og þrátt fyrir tvö sár töp gegn Nígeríu og Króatíu er full ástæða til að horfa björtum augum til framtíðar. 

Landsliðið lenti á Keflavíkurflugvelli klukkan 20:40 í kvöld eftir að hafa flogið í lágflugi yfir Reykjavík skömmu áður, en fréttastjóri mbl.is tók meðfylgjandi myndskeið. 

Engin formleg móttaka er á dagskránni í kvöld en liðið heldur ásamt starfsmönnum KSÍ í höfuðstöðvar sambandsins í Laugardal þar sem fjölskyldur leikmanna bíða eftir þeim. 

Strákarnir okkar eru komnir heim eftir frumraun sína á HM …
Strákarnir okkar eru komnir heim eftir frumraun sína á HM í knattspyrnu, Ljósmynd/Víkurfréttir
Boeing 757-þotu Icelanda­ir var flogið sérstak­lega út í morg­un til …
Boeing 757-þotu Icelanda­ir var flogið sérstak­lega út í morg­un til að sækja liðið. Ljósmynd/Víkurfréttir
Sverrir Ingi Ingason og Frederik Schram við heimkomuna í kvöld.
Sverrir Ingi Ingason og Frederik Schram við heimkomuna í kvöld. Ljósmynd/Víkurfréttir
Ólafur Ingi Skúlason var hress við komuna til Keflavíkur.
Ólafur Ingi Skúlason var hress við komuna til Keflavíkur. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Gylfi Þór Sigurðsson við komuna til Keflavíkur í kvöld.
Gylfi Þór Sigurðsson við komuna til Keflavíkur í kvöld. Ljósmynd/Víkurfréttir
Þægindin voru í fyrirrúmi þegar kom að vali á ferðaklæðnaði …
Þægindin voru í fyrirrúmi þegar kom að vali á ferðaklæðnaði hjá landsliðsþjálfaranum. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Rúrik Gíslason smellti á sig derhúfu við heimkomuna.
Rúrik Gíslason smellti á sig derhúfu við heimkomuna. Ljósmynd/Víkurfréttir
Hörður Björgvin Magnússon fékk góðar móttökur á vellinum eins og …
Hörður Björgvin Magnússon fékk góðar móttökur á vellinum eins og allt liðið. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari.
Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari. Ljósmynd/Víkurfréttir
Rútan sem flutti landsliðið frá Keflavík í höfuðstöðvar KSÍ var …
Rútan sem flutti landsliðið frá Keflavík í höfuðstöðvar KSÍ var vel merkt. Ljósmynd/Víkurfréttir
Lögreglumenn sáu til þess að allt færi vel fram þar …
Lögreglumenn sáu til þess að allt færi vel fram þar sem enginn dómari var viðstaddur að þessu sinni. Ljósmynd/Víkurfréttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert