Allir keppendur í WOW Cyclothon eru núna lagðir af stað hringinn í kringum Ísland en tíu manna liðin voru ræst af stað klukkan 19. Það er langfjölmennasti flokkur mótsins með um 720 keppendur í 72 ólíkum liðum.
Rásmarkið var við Egilshöllina í Grafarvogi og bíða 1.358 kílómetrar keppendanna sem liðin þurfa að klára innan þriggja sólarhringa í flokki fjögurra og tíu manna liða. Einstaklingarnir fimm sem skráðir eru til leiks, og sérstakur flokkur Hjólakrafts, hafa þrjá og hálfan sólarhring til að klára.
Búist er við keppendum á Akureyri í fyrramálið og til Egilstaða upp úr miðjum degi á morgun. Fylgst verður grannt með gangi mála hér á mbl.is.