Búast við að Eiríkur klári undir 58 tímum

mbl.is/Arnþór Birkisson

Búist er við því því að Eiríkur Ingi Jóhannsson, sem leiðir einstaklingskeppni WOW Cyclothon með töluverðu forskoti á aðra keppendur, komi í mark á milli klukkan eitt og tvö í nótt.

Hann var rétt ókominn á Vík þegar keppnisstjórn heyrði í liðinu hans klukkan 14:30 í dag. Ef áætlunin stenst kemur Eiríkur í mark á undir 58 klukkustundum en það er 9 klukkustundum skemmra en tíminn sem dugði Peter Coljin í öruggan sigur í fyrra.

Keppnin gengur mjög vel og veður hefur leikið við keppendur. Veðurskilyrði hafa í raun verið svo góð að í öllum flokkum er búist við að sigurvegarar komi í mark á frábærum tímum og búið er að flýta uppsetningu á endamarki á Krísuvíkurvegi.

Delcan Brassil og Halldór Snorrason eru í öðru og þriðja sæti eins og staðan er núna, en Declan er kominn fram hjá Jökulsárlóni og Halldór er um 50 kílómetrum aftar. Elín V. Magnúsdóttir er sú fjórða. Hún er komin niður af Öxi og er komin lengst allra kvenþátttakenda frá upphafi.

Í B-flokki karla er Sensa í fyrsta sæti en Team Skoda fylgir þeim fast á eftir. Þessi lið eru einnig komin niður Öxi og eru að hefja leið út úr Berufirði. Kolibiri Cycling og Decode XY fylgjast að í þriðja og fjórða sæti. Þau ættu að leggja af stað upp Öxi á hverri stundu.

Í B-flokki kvenna leiðir XY Cycling en þær eru á Möðrudalsöræfum. Akureyrardætur eru í öðru sæti en kvennalið Íslandsbanka er að sækja hratt á þær.

Í A-flokki karla eru liðin Team Cannondale GÁP Elite, Airport Direct og Harðkjarna öll á svipuðum stað í fyrsta til þriðja sæti. Þau eru á Skriðdals- og Breiðdalsvegi að nálgast Öxi. Í A-flokki kvenna keppir aðeins eitt lið. Það er liðið Lókal Stelpur, þær fóru nýlega yfir brúna yfir Jökulsá á Brú.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert