Tveir neituðu sök vegna innherjasvika

mbl.is/Ófeigur

Mál þriggja manna sem ákærðir eru fyrir innherjasvik og hlutdeild í innherjasvikum tengdum Icelandair Group hf. var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Mennirnir þrír, Kjartan Jónsson, Kristján Georg Jósteinsson og Kjartan Bergur Jónsson, eru ákærðir vegna viðskipta sem þeir tveir síðastnefndu áttu með afleiður, í flestum tilfellum kaup- eða sölurétti í félaginu.

Kjartan og Kjartan Bergur mættu fyrir dóm í dag og lýstu sig saklausa af ákæruefnum, en Kristján Georg er staddur erlendis og mun taka afstöðu til ákærunnar við næstu fyrirtöku málsins, sem ákveðið var að yrði þann 21. september næstkomandi.

Kjartan og Kristján Georg eru ákærðir fyrir innherjasvik en Kjartan Bergur fyrir hlutdeild í innherjasvikum. Viðskiptin sem ákært er fyrir áttu sér stað í október og nóvember 2015, júlí 2016 og janúar og febrúar 2017.

Kjartan Jónsson var forstöðumaður leiðastjórnunarkerfis Icelandair og sem slíkur skilgreindur í hópi lykilstarfsmanna flugfélagsins og einnig skráður fruminnherji í móðurfélaginu, Icelandair Group hf.

Hann er sakaður um að hafa veitt Kristjáni Georgi innherjaupplýsingar sem sem líklegar voru til að hafa marktæk áhrif á hlutabréfaverð Icelandair Group hf., ýmist jákvæð eða neikvæð eftir atvikum. Kristján Georg er sakaður um að hafa nýtt þessar upplýsingar til þess að stunda viðskipti í nafni félags síns VIP Travel ehf., sem nú heitir Fastrek ehf.

Kjartan og Kristján Georg eru ákærðir í þremur liðum og í ákæru segir að það þyki ljóst að þeir félagar hafi sammælst um að skipta með sér áhættu og hagnaðarvon í þessum viðskiptum.

Sagður hafa farið með skjáskot í bankann

Kristjáni Georgi er svo einnig gefið að sök að hafa deilt þessum innherjaupplýsingum sem hann fékk hjá Kjartani með Kjartani Bergi vini sínum. Hann mun hafa sent Kjartani Bergi rafræna mynd af valréttarsamningi sem hann gerði fyrir hönd VIP Travel ehf. og í ákæru segir að Kjartan Bergur hafi framvísað rafrænu myndinni í banka og óskað eftir „nákvæmlega eins samningi fyrir sig“.

Kjartan Bergur fékk þannig sínar upplýsingar ekki beint frá Kjartani Jónssyni hjá Icelandair, en samkvæmt ákærunni þekkjast þeir Kjartan Bergur og Kjartan einungis lítillega í gegnum Kristján Georg, sameiginlegan vin sinn.

Sem áður segir er áætlað að næsta fyrirtaka í málinu verði þann 21. september næstkomandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert