„Óþolandi orðræða“ fjármálaráðherra

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR. mbl.is/Valli

„Þetta er allt á sömu bókina lært,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, í samtali við mbl.is þegar hann er inntur eftir viðbrögðum við síðasta verki kjararáðs; launahækkunum 48 forstöðumanna ríkisstofnana.

Ákvörðun kjararáðs tek­ur til beiðna um launa­hækk­an­ir sem bár­ust frá for­stöðumönn­um rík­is­stofn­ana á ár­un­um 2016 og 2017 og tveim­ur fyr­ir þann tíma. Kveðið er á um mánaðarlaun og ein­ing­ar fyr­ir störf­in í úr­sk­urðinum. Hann leiðir til þess að laun for­stöðumann­anna breyt­ast mis­mikið, en veg­in meðaltals­hækk­un er um það bil 10,8%. Hækk­un­in gild­ir frá 1. des­em­ber í fyrra.

Þrettán forstöðumannanna eru með meira en eina milljón króna í föst mánaðarlaun eftir úrskurðinn. Hæstu launin fær forstjóri Landspítalans, 1.294.693 krónur, en næsthæstu rektor Háskóla Íslands, 1.251.843 krónur. Til viðbótar við hin föstu laun ákvarðaði kjararáð forstöðumönnunum mismunandi fjölda eininga á mánuði fyrir alla yfirvinnu sem störfunum fylgir. Einingarnar eru á bilinu 15 til 50.

Ragnar segir framkomu Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra dæmalausa en Bjarni sagði í samtali við mbl.is í gær að það væri „saga hins íslenska samningamódels að allir líti á sig sem sérstaka og að þeir eigi að hækka meira en aðrir. Þannig höf­um við farið í gegn­um hverja kjaralot­una á eft­ir ann­arri í gegn­um tíðina og endað úti í skurði, hrein­lega“.

Ragnar telur að eina höfrungahlaupið sem er í gangi sé í efstu lögum samfélagsins. „Það er alveg á hreinu hverjir eru að búa til þetta höfrungahlaup,“ segir Ragnar og bætir við að það sé ódýrt að reyna að skella skuldinni um launaskrið á herðar ljósmæðra þegar þær krefjist einfaldlega leiðréttingar í takt við nám og ábyrgð.

„Að setja þetta upp að ábyrgðin sé almenna vinnumarkaðarins eins og fjármálaráðherra gerir í gær er algjörlega óþolandi orðræða sérstaklega þegar stjórnvöld bera meginábyrgð á launaskriði efsta lagsins sem hefur verið undirfarið,“ segir Ragnar og bætir við að félagsmenn í VR muni ekki sætta sig við litlar hækkanir þegar þeir setjist næst að samningaborðinu.

„Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði losna um áramótin og það liggur alveg ljóst fyrir að við munum nota þessar hækkanir til hliðsjónar við okkar kjarabaráttu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert