Ókyngreind salerni hjá Reykjavíkurborg

Salerni fyrir starfsfólk í stjórnsýsluhúsum borgarinnar verða ókyngreind frá haustinu.
Salerni fyrir starfsfólk í stjórnsýsluhúsum borgarinnar verða ókyngreind frá haustinu. mbl.is

Mannréttinda- og lýðræðisráð Reykjavíkurborgar samþykkti einróma á sínum fyrsta fundi að öll salerni fyrir starfsfólk í stjórnsýsluhúsum borgarinnar verði gerð ókyngreind frá og með haustinu.

Einnig ákvað ráðið að ráðist verði í úttekt á klefa- og salernisaðstæðum í húsnæði þar sem Reykjavíkurborg veitir þjónustu, með tillögum að úrbótum sem taki mið af ólíkum þörfum borgarbúa.

Þetta verður gert í samráði við þau hagsmunasamtök er málið varðar, samkvæmt fréttatilkynningu frá borginni.

Þar segir ennfremur að með því að hafa salerni öllum opin og sér klefa þar sem eigi við sé komið til móts við þarfir margra hópa, meðal annars trans og intersex fólks og barna og fatlaðra barna í fylgd foreldris af gagnstæðu kyni. Einnig myndu sér klefar nýtast fólki með heilsufarsvanda eins og til dæmis stóma.

„Markmið samþykktarinnar er að draga úr fordómum og skapa betra aðgengi allra að samfélaginu í sinni víðustu mynd,“ segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Öll kyn munu nota sömu klósettin í Ráðhúsinu frá og …
Öll kyn munu nota sömu klósettin í Ráðhúsinu frá og með haustinu. mbl.is/Ófeigur

Mannréttinda- og lýðræðisráð bókaði að auki um málið:

Að um leið og ráðið ítrekar mikilvægi tillögunnar er skorað á þær einingar sem koma að uppbyggingu og viðhaldi eigna borgarinnar auk viðeigandi fagráða, að við uppbyggingu nýrra mannvirkja borgarinnar sem og við breytingar og aðrar framkvæmdir sé þess gætt að salernis-, sturtu- og búningsaðstaða sé eins ókynbundin og frekast er unnt. Þannig telja fulltrúarnir að vinna megi gegn mismunun og tryggja að fleiri geti nýtt sér þjónustu borgarinnar.

Mannréttinda- og lýðræðisráð Reykjavíkurborgar.
Mannréttinda- og lýðræðisráð Reykjavíkurborgar. Ljósmynd/Reykjavíkurborg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert