Nakið sár í fjallinu

Í Fagraskógarfjalli er nú nakið sár eftir skriðuna, en hún …
Í Fagraskógarfjalli er nú nakið sár eftir skriðuna, en hún tók fjallsöxlina með sér niður og bar yfir Hítardal. Ljósmynd/Mihails Ignats

Eftir skriðuna úr Fagraskógarfjalli í Hítardal í gær blasir við nakið sár í fjallinu, enda skreið heil fjallsöxl niður í hamförunum. Ljósmyndari sem var á ferð í morgun náði myndum af fjallinu skýjalausu og þar sést vel hversu gríðarlegir kraftar hafa verið þarna á ferð.

Þeir Geir Björnsson flugmaður og Mihails Ignats ljósmyndari flugu yfir dalinn í morgun og tóku meðfylgjandi myndir.

Sárið í Fagraskógarfjalli.
Sárið í Fagraskógarfjalli. Ljósmynd/Mihails Ignats
Hítará flæðir nú úr lóninu sem myndaðist fyrir ofan skriðuna …
Hítará flæðir nú úr lóninu sem myndaðist fyrir ofan skriðuna en rennur þaðan í þverána Tálma. Finnbogi Leifsson, bóndi í Hítardal, óttast gróðurskemmdir vegna breytinganna. Ljósmynd/Mihails Ignats

Líkt og mbl.is greindi frá fyrr í dag hefur áin fundið sér nýjan farveg og flæðir hún nú frá skriðunni og í þverána Tálma. Sú á rennur svo um 10-12 kílómetrum sunnar í farveg Hítarár á ný, en gamli farvegurinn er að mestu þurr þaðan og upp að skriðu.

Lónið sem myndaðist fyrir aftan skriðuna stækkaði hratt í gær, …
Lónið sem myndaðist fyrir aftan skriðuna stækkaði hratt í gær, en svo fór að áin fann sér nýjan farveg. Ljósmynd/Mihails Ignats

Skriðan sjálf er talin vera um 1,8 ferkílómetrar að stærð samkvæmt gervitunglamyndum ESA, en enn á eftir að koma í ljós hversu mikið rúmmál efnis fór þarna niður hlíðina. 

Áin fer fram hjá skriðunni eins og sjá má í …
Áin fer fram hjá skriðunni eins og sjá má í neðra vinstra horni myndarinnar. Ljósmynd/Mihails Ignats
Fjallshlíðin eftir skriðuna í gær.
Fjallshlíðin eftir skriðuna í gær. Ljósmynd/Mihails Ignats
Samkvæmt gervihnattamyndum ESA virðist umfang skriðunnar fyrir neðan fjallshlíðina vera …
Samkvæmt gervihnattamyndum ESA virðist umfang skriðunnar fyrir neðan fjallshlíðina vera alla vega 1,8 ferkílómetrar að stærð. Ljósmynd/Mihails Ignats
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert