Eldur í kísilverinu við Húsavík

Slökkviliðsbíll að störfum í kvöld. Búið er að slökkva eldinn.
Slökkviliðsbíll að störfum í kvöld. Búið er að slökkva eldinn. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Allt tiltækt slökkviliðs Norðurþings var kallað út á áttunda tímanum þegar eldur kom upp í kísilveri PCC Bakka við Húsavík.

Samkvæmt Grími Kárasyni, slökkviliðsstjóra á Húsavík, er búið að slökkva eldinn. Eldur kom upp á milli hæða í ofnhúsi og gekk greiðlega að ráða niðurlögum hans. „Við erum alveg að klára vinnuna hér,“ sagði Grímur í samtali við mbl.is og bætti við að slökkviliðið væri í glæðuleit og reykræstingu. Engan sakaði í eldinum að sögn Gríms.

Kísilver PCC Bakka við Húsavík.
Kísilver PCC Bakka við Húsavík. mbl.is/Skapti Hallgrímsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert