Þyrlan flýgur aftur yfir Melrakkasléttu

Lögreglu barst tilkynning um að sést hefði til hvítabjarnar nyrst …
Lögreglu barst tilkynning um að sést hefði til hvítabjarnar nyrst á Melrakkasléttu. Kort.mbl.is/

Lögreglan á Norðurlandi eystra óskaði eftir því í morgun við Landhelgisgæsluna að þyrla hennar myndi ásamt lögreglu aftur fljúga yfir svæðið þar sem tilkynnt var um hvítabjörn á Melrakkasléttu í gær.

Lög­regl­an á Norður­landi eystra sagði í gærkvöldi að veiðimenn hefðu séð til bjarn­ar­ins og voru íbúar á svæðinu látnir vita að sést hefði til bjarndýrs.

AFP

Í tilkynningu lögreglunnar á Facebook segir að þyrlan fljúgi yfir í öryggisskyni en enginn önnur tilkynningin, en sú sem barst í gær, hafi borist lögreglu um björninn.

Áréttað er að ef fólk verður vart við dýrið skal það hafa samband við 112.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert