Breytingar á umferð á horni Lækjargötu og Vonarstrætis

Myndin sýnir breytingar á fyrirkomulagi umferðar á svæðinu.
Myndin sýnir breytingar á fyrirkomulagi umferðar á svæðinu. mynd/Reykjavíkurborg

Umferðarfyrirkomulagi á horni Lækjargötu og Vonarstrætis hefur verið breytt meðan unnið er að framkvæmdum við hótel á svæðinu þar sem Íslandsbanki var staðsettur á árum áður.

Ný umferðarljós hafa verið sett upp vegna framkvæmdanna og gert er ráð fyrir því að umferð verði með þessum hætti næstu tvö árin.

Einungis strætisvögnum verður heimilt að aka vestur Vonarstræti á meðan framkvæmdum stendur og þá aðeins ef þeir koma eftir Lækjargötu úr norðri. Allri annarri umferð er beint um Skólabrú.

„Útfærsla umferðar tekur mið af því að tryggja greiða og örugga gönguleið meðfram vinnusvæðinu og gera akstursleiðir öruggar,“ segir í tilkynningu Reykjavíkurborgar vegna breytinganna.

Óhefðbundið fyrirkomulag verður á umferðarljósunum í Vonarstræti þar sem að ljósin eru nokkuð innarlega í götunni. Ástæðan er sú að á framkvæmdasvæðinu er einungis ein akrein og því mikilvægt að ökumenn virði það að stöðva við rauða ljósið. Ef það er ekki gert skapast umferðarhnútur á gatnamótunum sem heftir leið umferðar frá Lækjargötu, segir einnig í tilkynningunni.

Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Milli Skólabrúar og Vonarstrætis fer umferð nú eftir Lækjargötu um eystri akbraut en vestari akbraut verður notuð undir gönguleið og vinnuaðstöðu verktaka. Vegna þess mun helmingur safnstæðis hópbifreiða við Mæðragarð lokast.

Hér má sjá fleiri tilkynningar um lokun gatna og aðrar takmarkanir á umferð.

Ljósmynd/Reykjavíkurborg
Ljósmynd/Reykjavíkurborg
Ljósmynd/Reykjavíkurborg
Ljósmynd/Reykjavíkurborg
Ljósmynd/Reykjavíkurborg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert