Hamrahlíð lokuð í tvær vikur

Veitur eru að leggja svera vatnslögn frá dælustöð við Stigahlíð.
Veitur eru að leggja svera vatnslögn frá dælustöð við Stigahlíð.

Hamrahlíð verður lokað við Kringlumýrarbraut klukkan 14:00 á morgun og verður gatan lokuð í um tvær vikur. Þetta er gert vegna endurnýjunar aðalæðar vatnsveitu Veitna.

Vegna þessa mun akstur á leið 13 hjá Strætó raskast. Nokkrar biðstöðvar verða óvirkar og nánari upplýsingar verða á vef Strætó. Almennar ökuleiðir breytast líka og þarf að fara aðrar leiðir inn í hverfið og út úr því. Þær helstu eru um Litluhlíð, sem tengist Bústaðavegi, og Lönguhlíð, sem tengist Miklubraut, samkvæmt tilkynningu frá Veitum.

Veitur eru að leggja svera vatnslögn frá dælustöð við Stigahlíð, meðfram Kringlumýrarbraut að Bústaðavegi. Samhliða leggur Reykjavíkurborg hjóla- og göngustíga og reisir hljóðvegg meðfram byggðinni við Stigahlíð sunnan Hamrahlíðar. Verkið hófst fyrir um mánuði og nú er komið að því að leggja lögnina undir Hamrahlíð. Helstu hagsmunaaðilum á svæðinu hefur verið gert viðvart um lokunina.

Frétt á vef Veitna

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert