13 sóttu um stöðu bæjarstjóra Ísafjarðar

Þrettán hafa sótt um stöðu bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar.
Þrettán hafa sótt um stöðu bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar. mbl.is

Þrettán umsóknir bárust um stöðu bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar. Fyrrverandi bæjarstjóri, Gísli H. Halldórsson, lét af störfum 12. júní. Í-listinn missti meirihluta í sveitarstjórnarkosningunum í vor og var það samkomulag Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, sem mynda nýjan meirihluta, að ráða bæjarstjóra. 

Meðal umsækjenda er Þórdís Sif Sigurðardóttir, bæjarritari Ísafjarðarbæjar og starfandi bæjarstjóri. 

Listir yfir umsækjendurna 15 hefur verið birtur á heimasíðu Ísafjarðarbæjar. Þeir eru, í stafrófsröð: 

Ágúst Angantýsson, M.Sc. umhverfis- og auðlindastjórnun

Ármann Halldórsson sviðsstjóri

Ármann Jóhannesson byggingarverkfræðingur

Berglind Ólafsdóttir ráðgjafi

Einar Örn Thorlacius lögfræðingur

Glúmur Baldvinsson, M.Sc. alþjóðasamskipti

Guðmundur Gunnarsson framkvæmdastjóri

Guðrún Anna Finnbogadóttir, sjávarútvegsfræðingur og M.Sc umhverfisstjórnun

Linda Björk Hávarðardóttir verkefnastjóri

Miguel Martins MBA

Runólfur Ágústsson framkvæmdastjóri

Þórdís Sif Sigurðardóttir, sviðsstjóri stjórnmála- og fjármálasviðs

Þórður Valdimarsson viðskiptafræðingur

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert