Útkall vegna slasaðrar konu í Þórsmörk

Sjúkralið og björgunarsveitir eru á leið inn í Þórsmörk að …
Sjúkralið og björgunarsveitir eru á leið inn í Þórsmörk að sækja þann slasaða. mbl.is/Ómar

Lögreglu barst tilkynning nú rétt fyrir klukkan 16 um slasaða konu í Þórsmörk. Sjúkralið og björgunarsveitir eru nú á leið á staðinn.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi er um mögulegt beinbrot að ræða og þurfa björgunaraðilar að ganga til þess að komast að þeim slasaða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert