Klæddi sig í stolin föt

mbl.is/Hjörtur

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var í gærkvöldi tilkynnt um þjófnað úr fataskápum gesta í Sundlaug Vesturbæjar þar sem stolið var meðal annars buxum með belti og ýmsum munum og verðmætum. 

Maður var handtekinn skömmu síðar íklæddur áðurnefndum buxum með belti og var einnig með hin stolu verðmæti á sér. 

Maðurinn var vistaður í fangageymslu lögreglu vegna rannsóknar málsins og lögreglan segir að reynt verði að koma mununum til eigenda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert