Tveir unnu 112 milljónir í EuroJackpot

Aðalvinningur í Eurojackpot gekk ekki út í kvöld, föstudaginn 13.
Aðalvinningur í Eurojackpot gekk ekki út í kvöld, föstudaginn 13.

Enginn var með allar tölur réttar og báðar stjörnutölur í í útdrætti kvöldsins í EuroJackpot og því stefnir í tvöfaldan pott næsta föstudag. Tveir miðahafar duttu samt sem áður í lukkupottinn og voru með annan vinning sem hljóðar upp á tæplega 112 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Þýskalandi og Finnlandi.

Þá voru þrír með þriðja vinning og hlýtur hver þeirra rúmlega 26 milljónir króna. Tveir miðanna voru keyptir í Þýskalandi og sá þriðji í Slóvakíu.

Enginn var með allar réttar tölur í réttri röð í Jóker í kvöld og gekk 2. vinningur í Jóker ekki heldur út.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert