„Vaknið ríkisstjórn!“

Tveir samstöðufundir hafa verið haldið í tengslum við kjarabaráttu ljósmæðra …
Tveir samstöðufundir hafa verið haldið í tengslum við kjarabaráttu ljósmæðra en nú hafa samtökin Jæja boðað til mótmæla á Austurvelli á þriðjudag. mbl.is/Hari

„Ríkisstjórnin skal nú gera sér grein fyrir því að öll spjót standa að henni og að ábyrgðin er hennar ef að eitthvað fer úrskeiðis á Landspítalanum.“ Þetta er meðal þess sem kemur fram í fundarboði samtakanna Jæja sem boða til mótmælafundar á Austurvelli á þriðjudag undir yfirskriftinni: „Vaknið ríkisstjórn!“

Upp úr slitnaði í kjaraviðræðum ljós­mæðra og samn­inga­nefnd­ar rík­is­ins enn eina ferðina í fyrradag og að öllu óbreyttu hefst yfirvinnuverkfall ljósmæðra á miðnætti 18. júlí. Ljós­mæður gera kröfu um 17-18 pró­senta launa­hækk­un en Katrín Sif Sig­ur­geirs­dótt­ir, formaður samn­inga­nefnd­ar ljós­mæðra, seg­ir til­boð rík­is­ins ekki hafa náð 12 pró­sent­um. Ekki hefur verið boðað til nýs fundar í deilunni. 

Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að nýj­ustu kröf­ur ljós­mæðra væri upp­skrift að óstöðug­leika, hærri vöxt­um og verðbólgu.

Samtökin hvetja fólk til að fjölmenna á mótmælafundinn og gefast ekki upp í kjarabaráttu ljósmæðra og benda á að ríkisstjórnin beri ein ábyrgð á því neyðarástandi sem að skapast hefur á fæðingardeild Landspítalans. „Ríkisstjórnin ber EIN ábyrgð á því að í kjölfarið eru mannslíf beinlínis í hættu og lífi yngstu borgarar landsins, nýfæddra og ófæddra barna teflt á tæpasta vað,“ segir á Facebook-síðu mótmælafundarins á Facebook.  

Óljóst er ná­kvæm­lega hver verða áhrif þess að ljós­mæður hefja yf­ir­vinnu­bann en yf­ir­ljós­móðir á Land­spít­al­an­um á erfitt með að svara því hvort ör­yggi þeirra sem þangað koma verði ógnað vegna mann­eklu. 12 ljósmæður sögðu upp um mánaðamótin og segir Linda Krist­munds­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri kvenna- og barna­sviðs spít­al­ans, stöðuna vera mjög erfiða.

Verið er að undirbúa neyðaráætlun á Landspítalanum vegna yfirvinnubannsins en núverandi neyðaráætlun, sem hefur verið í gildi síðustu tvær vikur, nær ekki yfir yfirvinnubannið sem hefst í næstu viku.

Mótmælin fara fram sem fyrr segir á þriðjudag og hefjast klukkan 15. Þingfundur hefst á Alþingi klukkan 13:30 sama dag.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert