Enginn fannst með eggvopn

mbl.is/Eggert

Leit lögreglu að manni, sem sagður var hafa sést á gangi um Laugardalinn í Reykjavík í gærkvöldi með eggvopn, bar engan árangur. Þetta segir Jóhann Karl Þórisson aðstoðaryfirlögregluþjónn.

Lögreglu bárust tilkynningar um ferðir mannsins í gærkvöldi við verslunarkjarnann Glæsibæ og kom lögreglan á svæðið á tíunda tímanum í gærkvöldi. Þrjá lögreglubíla mátti sjá á svæðinu auk þess sem sérsveitin mætti stuttu síðar. Lögreglan leitaði mannsins í hverfinu og leit meðal annars inn á barinn Ölver auk þess að kíkja inn í verslunina Iceland, án árangurs.

Jóhann Karl segir málið hafa reynst „storm í vatnsglasi“ þótt ekki sé hægt að útiloka að hnífamaður hafi verið á ferli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert