Samkeppniseftirlitið stöðvar gjaldtöku Isavia

Samkeppniseftirlitið hefur gert Isavia ohf. að stöðva tímabundið gjaldtöku á …
Samkeppniseftirlitið hefur gert Isavia ohf. að stöðva tímabundið gjaldtöku á ytri rútustæðum (fjarstæðum) við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. mbl.is/Sigurður Bogi

Samkeppniseftirlitið hefur í dag tekið bráðabirgðaákvörðun þar sem Isavia ohf. er gert að stöðva tímabundið gjaldtöku á ytri rútustæðum (fjarstæðum) við Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Gjaldtakan tók gildi 1. mars 2018, í framhaldi af útboði og samningum um nýtingu tveggja hópferðafyrirtækja á stæðum við flugstöðvarbygginguna (nærstæði).

Það er niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að skilyrði til bráðabirgðaákvörðunar sé fyrir hendi, en eftirlitinu er heimilt að taka bráðabirgðaákvörðun ef sennilegt þykir „að sú háttsemi sem er til athugunar gangi gegn ákvæðum samkeppnislaga og ef líklegt þykir að bið eftir endanlegri ákvörðun leiði til röskunar á samkeppni eða að málið þoli að öðru leyti ekki bið,“ að því er segir í fréttatilkynningu.

Telur eftirlitið sennilegt að Isavia hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína með óhóflegri verðlagningu við gjaldtöku fyrir notkun á fjarstæðum. Jafnframt mismuni Isavia viðskiptavinum í verðlagningu og skilmálum.

Þá er það mat Samkeppniseftirlitsins að bið eftir endanlegri ákvörðun geti skaðað samkeppni og að verði ekkert að gert þá muni gjaldtaka Isavia á fjarstæðum „hafa veruleg skaðleg áhrif á rekstur fyrirtækja sem nýta þurfi fjarstæðin.“ Einnig liggi fyrir að gjöld vegna stæðanna hækki að óbreyttu verulega 1. september er afsláttur á svonefndu aðlögunartímabili verður felldur niður.

Bráðabirgðaákvörðunin gildir til 31. desember 2018.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert