Dónaskapur að virða ekki embættið

Sjálfstæðismenn mæta til Þingvalla. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari flokksins, Bjarni …
Sjálfstæðismenn mæta til Þingvalla. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari flokksins, Bjarni Benediktsson formaður og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra iðnaðar- og ferðamála. mbl.is/Hari

Þeir sem slá reglulega um sig með því að leggja áherslu á lýðræðið, eiga jafnframt oft erfiðast með að virða niðurstöðu þeirra leikreglna sem tryggja lýðræðislega niðurstöðu. Þetta sagði Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra í Facebook-færslu fyrir skemmstu og gagnrýnir þá ákvörðun þingflokks Pírata að sniðganga hátíðarþingfundinn sem nú fer fram á Þingvöllum vegna veru Piu Kjærs­ga­ard, þingforseta danska þingsins, á fundinum.

„Það er til fólk sem slær reglulega um sig með því að leggja áherslu á lýðræðið. Vilja fólksins. Frelsi hins almenna kjósanda til að koma skoðunum sínum að. Í því samhengi er reglulega rætt um rétt minnihlutans til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og hafa áhrif,“ segir Bjarni í færslu sinni.

Þetta sé tryggt í flestum ríkjum með almennum, frjálsum kosningum og byggt á fulltrúalýðræði. Þegar á reyni eigi þetta sama fólk hins vegar erfiðast með að virða niðurstöðu þeirra leikreglna sem best tryggi lýðræðislega niðurstöðu.

„Það hikar ekki við að segja tiltekna rétt kjörna einstaklinga óalandi og óferjandi, jafnvel með öllu óvelkomna og óhæfa til samskipta. Þegar Alþingi Íslendinga býður forseta danska þjóðþingsins til að vera viðstaddur hátíðarhöld vegna sögulegra tímamóta finnst þessu fólki þannig við hæfi að útiloka viðkomandi einstakling, kosinn í frjálsum almennum kosningum.

Bjarni kveðst sjálfur ekki deila skoðunum viðkomandi stjórnmálamanns á ýmsum hlutum og hann hafi skilning á að fólk hafi skoðun á og sé ósammála áherslum hans. „En það er óskylt lýðræðinu að virða ekki embætti danska þingsins. Það er yfirlæti og beinlínis dónaskapur gagnvart danska þjóðþinginu og dönsku þjóðinni. Það er mitt viðhorf.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert