Umferðarstjórnun á Þingvöllum

Hundrað ára fullveldi Íslands verður fagnað á Þingvöllum í dag.
Hundrað ára fullveldi Íslands verður fagnað á Þingvöllum í dag. mbl.is/Hari

Vegna hátíðarfundar Alþingis á Þingvöllum í dag, 18. júlí, verður umferð stýrt í og við þjóðgarðinn. Mun það hafa áhrif á akandi jafnt sem gangandi vegfarendur. Kort sem sýnir lokanir má sjá neðst í fréttinni.

Frá klukkan 8 til 18 verður vegur inn að gestastofu að Haki og bílastæði lokaður fyrir almennri umferð. Lokunin verður við þjóðveg 36.

Gönguleiðin frá Haki niður að Lögbergi við Hamraskarð verður lokuð frá 08.00 til 16:15.  

Frá 12 til 18 verður einstefna frá gatnamótum við þjónustumiðstöð til suðurs með vegi 361 með vatni að Arnarfelli. Vegur að bílastæðum við P2 við Kastala og Öxarárfoss verður með tvístefnu en bílum gert að beygja til suðurs með vatni á gatnamótum við Vallaveg 361.  

Vegur inn að Valhallarreit verður lokaður fyrir akandi umferð innan við Silfru þar sem stjórnstöð lögreglu og björgunarsveita verður.

Bílastæði verða sem hér segir:

Rútur:

  • Við Langastíg norðan við Öxará fyrir ofan Almannagjá.
  • Í Vallarkróki
  • Furulundi
  • Öxarárfossi
  • Kastala P2
  • Á bílastæðum við tjaldstæði á Syðri-Leirum sunnan við þjónustumiðstöðina.

Einkabílar:

Einkabílar leggja á grasflötum neðan við Öxarárfoss og við Furulund. Ef nauðsyn krefur verður einkabílum beint inn á tjaldsvæði við Syðri-Leira sunnan við þjónustumiðstöðina. Gönguleið er um Fögrubrekku frá tjaldsvæðum við Syðri-Leira. Einnig verða rútuferðir á milli tjaldstæða og bílastæði P2 við Kastala.

Gönguleiðir í þinghelgi:

Aðgengi verður að Lögbergi og inn í Almannagjá norðan frá um göngustíg frá Kastölum P2 um Almannagjá hjá Drekkingarhyl að Lögbergi. Aðgengi verður að Lögbergi um pallinn og að brekkunni fyrir neðan. 

Gönguleiðir um heimreið að Þingvallabæ frá P2 Kastölum verður opin. Hægt að ganga að kirkju og um stíga austan við Öxará að Öxarárbrú. 

Lokuð svæði verða frá Valhallarreit norður að Lögbergi vestan Öxarár og upp að neðri barmi Almannagjár.

Lokað verður fyrir göngustíginn yfir Öxará frá 08:00 til 24:00 hátíðardaginn. Einnig má búast við töfum og lokunum á þeim stíg meðan á undirbúningi stendur viku fyrir hátíðarfundinn og í tvo daga eftir fundinn.

Lögregla stýrir umferð og aðgerðum en björgunarsveitir Landsbjargar og starfsfólk þjóðgarðsins mun einnig vinna að verkefninu.

Kort sem sýnir hvernig umferð verður stýrt í dag.
Kort sem sýnir hvernig umferð verður stýrt í dag.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert