Fundi samninganefnda ljósmæðra og ríkisins sem hófst klukkan 10:30 er lokið. Báðar samninganefndir gáfu það út fyrir fundinn að þær hefðu ekki lagt fram nýjar tillögur. Hlé var gert á miðjum fundi en mun honum nú vera lokið. Ekki hefur náðst í deiluaðila.
Ríkissáttasemjari flýtti fundinum vegna þess alvarlega ástands sem upp er komið í deilunni, en funda átti á mánudag. Forstjóri Landspítalans, Páll Matthíasson, hafði gagnrýnt að fundað væri á tveggja vikna fresti þegar staðan á spítalanum væri grafalvarleg.