Minni en meðalumferð um helgar

Einhverjir mótmæltu á fundinum í gær.
Einhverjir mótmæltu á fundinum í gær. mbl.is/​Hari

Umferð um Þingvallaveg reyndist rétt yfir meðaltali, á hátíðarfundi Alþingis. Um 273 bílum meira fór um heiðina.“ Þetta kemur fram á Twitter-síðu Vegagerðarinnar en umferð um Mosfellsheiði í gær var minni en meðalumferð um helgar í júní og júlí.

Mæting almennings á hátíðar­fund Alþing­is, sem fram fór und­ir Lög­bergi á Þing­völl­um í gær var dræm­ari en bú­ist hafði verið við, en lög­regla og Vega­gerðin höfðu gert sér­stak­ar ráðstaf­an­ir til þess að stýra um­ferð inn í þjóðgarðinn.

Jafnvel var búist við nokkr­um þúsund­um gesta en talið er að þeir hafi ekki verið nema um 350.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert