Landsmönnum fjölgaði um 2.360

Alls fæddust 1.010 börn á 2. ársfjórðungi.
Alls fæddust 1.010 börn á 2. ársfjórðungi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Um mitt ár bjuggu 353.070 manns á Íslandi, 180.420 karlar og 172.650 konur. Landsmönnum fjölgaði um 2.360 á 2. ársfjórðungi eða um 0,7%. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 225.210 manns en 127.860 utan þess.

Þetta kemur fram í frétt Hagstofu Íslands.

Alls fæddust 1.010 börn á 2. ársfjórðungi, en 590 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 1.940 fleiri einstaklingar til landsins en frá því. Aðfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 190 umfram brottflutta. Aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 1.750 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 140 manns á 2. ársfjórðungi 2018. Alls fluttust 480 íslenskir ríkisborgarar frá landinu og af þeim fluttust 290 til Danmerkur, Noregs eða Svíþjóðar. Af þeim 1.410 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 480 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar voru frá Danmörku (200), Noregi (150) og Svíþjóð (130), samtals 470 manns af 670. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 1.140 til landsins af alls 3.150 erlendum innflytjendum. Litháen kom næst, en þaðan fluttust 390 erlendir ríkisborgarar til landsins. Í lok annars ársfjórðungs bjuggu 41.280 erlendir ríkisborgarar á Íslandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert