Metmánuður í fíkniefnaakstri

Alls voru skráð 762 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í júní.
Alls voru skráð 762 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í júní. mbl.is/Hjörtur

163 brot vegna aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna voru skráð hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í júní, en aldrei hafa slík brot verið fleiri í einum mánuði frá því að samræmdar mælingar hófust árið 1999. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu, sem hefur nú birt afbrotatölfræði fyrir júnímánuð á vefnum.

Í skýrslunni eru teknar saman upplýsingar um helstu afbrot sem hafa verið tilkynnt til lögreglu. Fjallað er um þróunina á síðustu 13 mánuðum og tölur það sem af er ári bornar saman við sama tímabil síðustu þriggja ára.

Alls voru skráð voru 762 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í júní. Þar af voru skráð 310 þjófnaðarbrot, sem eru nokkuð færri brot en voru skráð í maí. Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust 123 tilkynningar um ofbeldisbrot í júní sem er nokkur fjölgun miðað við fyrri mánuði.

Tilkynningum um kynferðisbrot fækkaði hins vegar miðað við meðalfjölda fyrri mánuða. Skráðar voru 13 tilkynningar um kynferðisbrot í júní.

Aðeins einu sinni fleiri fíkniefnabrot

Í júní var 1.241 umferðarlagabrot skráð á höfuðborgarsvæðinu sem er þónokkur fjölgun miðað við fyrri mánuði. Til viðbótar við þá 163 sem óku undir áhrifum ávana- og fíkniefna voru skráð 118 brot vegna ölvunar við akstur í júní sem er þó nokkur fjölgun brota miðað við fyrri mánuði.

Skráðum fíkniefnabrotum fjölgaði einnig í júní. Skráð voru 204 fíkniefnabrot sem er um 63 prósenta fjölgun miðað við fjölda brota í maí. Aðeins einu sinni áður hafa jafnmörg fíkniefnabrot verið skráð í einum mánuði, en það var í júní árið 2014 þegar 214 fíkniefnabrot komu á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, að því er segir í samantekt frá greiningardeild lögreglu.

Afbrotatölfræði LRH fyrir júnímánuð 2018

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert